Þarfagreining um gildi rafrænnar ráðgjafar/meðferðar var framkvæmd með því að sérfræðingar svöruðu spurningalista þar sem spurt var um gildi rafrænna miðla í ráðgjöf eða meðferð. Spruningalistinn var lagður fyrir sérfræðinga sem starfa í þeim löndum sem samstarfsaðilar verkefnisins tilheyra. Alls svöruðu 252 einstaklingar spurningalistanum. Hér eru helstu niðurstöður þarfagreiningarinnar.
Þátttakendur
- 252 einstaklingar frá sjö löndum
- Um það bil 80% konur
- Þriðjungur á aldursbilinu 41-50 ára
- Starfsreynsla frá 0 til 25 ára
- Um 50% ráðgjafar, 42% sálfræðingar, 20% aðrir
Notkun rafmiðla í rafrænni ráðgjöf/meðferð
- Tölvupóstur (74%), fjarfundir með hljóði (30%), fjarfundir með mynd og hljóði (27%).
- Samfélagsmiðlar (um 40%): Facebook (86%), aðrir miðlar (35%) þ.e. vefsíður t.d. LinkedIn.
Af þeim tækjum sem notuð eru í rafrænni ráðgjöf nota um 70% tölvur.
Reynsla af notkun netsins við ráðgjöf/meðferð
- Rúmlega 50% þeirra sem svöruðu spurningalistanum voru jákvæðir eða mjög jákvæðir í garð notkunar rafrænna miðla í ráðgjöf/meðferð. Af þeim sem svöruðu höfðu 25% enga reynslu af rafrænni ráðgjöf.
- Ráðgjafar/meðferðaraðilar sögðu ástæður þess að þeir notuðu ekki mikið rafræna miðla vera aðallega þær að þeim fannst samskiptin ópersónuleg (50%) og ekki nægilega örugg (34 %).
Kostir rafrænnar ráðgjafar/meðferðar
- Sveigjanleiki varðandi staðsetningu, þ.e. þurfa ekki að mæta á tiltekinn stað (75%).
- Sveigjanleg tímasetning (67%).
- Auðveldara aðgengi að tilteknum markhópi (56%).
- Auðveldara að ná til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda (52%).
Gallar rafrænnar ráðgjafar/meðferðar
- Skortur á sýnilegum svipbrigðum og líkamstjáningu (72%).
- Ekki viðeigandi fyrir öll vandamál/viðfangsefni (63%).
- Hugsanlegur misskilningur (57%).
- Algengustu vandamál sem ungmenni eiga við að stríða samkvæmt reynslu sérfræðinga
- Fjölskylduerfiðleikar (69%), kvíði (68%), þunglyndi (55%), skortur á hæfni til að leysa vandamál (50%), samskiptavandi (49%), sértækir námsörðugleikar (49%), áfengis/vímuefnanotkun (42%), einelti/neteinelti (40%).
Ráðgjafar/meðferðaraðilar höfðu val um að merkja við fleiri en eitt atriði.
Þeir þættir varðandi rafræna ráðgjöf/meðferð sem þóttu áhugaverðir að mati þeirra sem svöruðu
- Reynslusögur fagmanna (72%), upplýsingar um hugbúnað sem hægt er að nýta í rafrænni ráðgjöf (64%), upplýsingar um trúnað (49%), upplýsingar um siðfræðileg atriði (47%), upplýsingar um samskiptamiðla (42%).
- Áhugi fyrir að taka þátt í þjálfun um rafræna ráðgjöf eða meðferð: já (49%), kannski (37%), nei (14%).